Bandalag íslenskra tónleikahaldara (BÍT) eru hagsmunasamtök fyrirtækja og einstaklinga sem sem starfa við tónleikahald á Íslandi. Félagið var formlega stofnað í september 2020, sem viðbrögð við miklum breytingum á tónleikamarkaði í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins. Ljóst var að upplýsingaflæði og samvinna innan geirans myndi leiða til hagsbóta fyrir hagsmunaaðila tónleikahalds og tryggja meiri stöðugleika til lengri tíma.  

Tónleikahald hefur á skömmum tíma orðið mikilvægasta stoð tónlistargeirans. Þegar plötusala byrjaði að lækka verulega í byrjun aldarinnar hefur lifandi flutningur á tónlist verið ein helsta tekjulind tónlistarmanna, með mikilvæg afleiðuáhrif fyrir tengda aðila. Þar má nefna tæknimenn, tækjaleigur og bókunarskrifstofur. Það er þannig öllum til hagsbóta að hér á landi sé starfandi og blómstrandi tónleikahald.

Tilangur og samþykktir

Tilgangur félagsins er að halda vörð um réttindi tónleikahaldarans og forsvarsmanna þeirra.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að ná samtöðu með tónleikahöldurum á Íslandi, ná hagræðingu í samningum til þriðja aðila og hafa góða upplýsingagjöf um skattamál,opinberar reglur og leyfismál sem tengjast tónleikahaldi á Íslandi. Upplýsa fjölmiðla og almenning um stöðu tónleika.

Félagið er opið einstaklingum sem hafa reynslu af tónleikahaldi, fyrirtækjum tengd tónleikahaldi sem að fullu styðja markmið félagsins. Þú getur sótt um aðild hér.

Þeir sem uppfulla kröfur BÍT og eru samþykktir sem meðlimir fá leyfi til að nota vörumerki BÍT og “Viðurkenndur tónleikahaldari” stimpil frá BÍT í sínu kynningarefni.

Stjórn

Ísleifur Birgir Þórhallsson
stjórnarformaður

Friðrik Ómar Hjörleifsson
meðstjórnandi

Geoffey Þór Huntingdon-Williams
meðstjórnandi

Guðbjartur Finnbjörnsson
meðstjórnandi

Sigríður Beinteinsdóttir
meðstjórnandi

Steinunn Camillia Sigurðardóttir
meðstjórnandi

Þorkell Máni Pétursson
Meðstjórnandi